Hvernig á að taka við greiðslum með myPOS Glass

Hvernig á að taka við greiðslum með myPOS Glass
Virkar myPOS Glass með snjallsímanum mínum?
myPOS Glass virkar með breiðu úrvali af Android snjallsímum, lágmarksútgáfan er 8.1. Til að komast að því hvaða snjallsímar eru samhæfir forritinu skaltu skoða hér fyrir neðan (þetta er ekki heildarlisti þar sem ný tæki bætast reglulega við).
Ég er að reyna að taka við greiðslu en síminn minn virðist ekki greina kortið. Hver er ástæðan fyrir þessu?
Það er hugsanlegt að kortið sem þú ert að taka við sé ekki snertilaust. Þú ættir að athuga þetta vandlega áður en þú heldur greiðsluferlinu áfram. Þú finnur einfaldlega snertilausa merkið á kortinu og ef það er sýnilegt getur þú einnig tekið við kortinu með myPOS Glass appinu þínu. Gakktu líka úr skugga um að kortið sem þú tekur við sé frá Visa eða Mastercard.
Gakktu úr skugga um að korti viðskiptavinarins sé alltaf haldið upp að bakhlið símans svo hægt sé að lesa það almennilega. Kortið ætti aðeins að taka frá bakhliðinni þegar punktunum á skjánum hefur verið hlaðið og hljóðmerki heyrist sem staðfestir að greiðslan hafi tekist.
Hvar ætti viðskiptavinurinn að setja kortið sitt þegar ég tek við greiðslu með myPOS Glass?
Snjallsíminn þinn hefur sérstakan skynjara á bakhliðinni sem gerir þér kleift að taka við greiðslum með snertilausum kortum. Til að taka við greiðslu skaltu einfaldlega halda kortinu yfir eða pikka kortinu á bakhlið snjallsímans fyrir ofan þennan skynjara og þá er allt klárt! Á meðan þú setur upp myPOS Glass appið hefurðu tækifæri á að finna nákvæma staðsetningu NFC skynjarans á símanum þínum með því að pikka á Meira -> Viðbótarstillingar -> Finna NFC lesara.
Hvernig kortum getur myPOS Glass tekið við?
Þú getur tekið við öllum snertilausum EMV-byggðum debetkortum, kreditkortum og fyrirframgreiddum kortum frá Visa og Mastercard. Það sem meira er, þú getur einnig tekið við greiðslum með farveskjum og NFC-búnaði.
Þegar ég tek við greiðslu með korti, hvenær koma greiðslurnar í gegn?
Helsti samkeppnishæfi kosturinn sem myPOS býður upp á er samstundis uppgjör fjár. Þetta þýðir að sem myPOS söluaðili verður fé þitt aðgengilegt nokkrum sekúndum eftir færsluna.
Viðskiptavinurinn minn vill greiða með korti sem er hvorki Visa né Mastercard. Get ég tekið við þannig greiðslu?
Þó myPOS Glass virki eins og er með Visa og Mastercard fyrir NFC snertilaus kort þá geturðu engu að síður tekið við greiðslum í gegnum símann þinn með QR-kóða. Með QR-kóðanum getur þú, fyrir utan Visa og Mastercard, tekið við AMEX, Union Pay, Bancontact, JCB payments, Apple Pay og Google Pay. Það er auðvelt að framkalla QR-kóða, þú þarft einungis að slá inn greiðsluupphæðina, pikka á QR-kóða eiginleikann á símanum þínum og þegar hann hefur verið framkallaður getur viðskiptavinurinn skannað hann. Viðskiptavinurinn fer svo á örugga síðu til að ganga frá greiðslunni. Þegar þessu er lokið er greiðslan gerð upp samstundis á reikningnum þínum.
Kort viðskiptavinarins er ekki snertilaust. Get ég samt tekið við greiðslunni?
Já, þú getur það með nýja greiðslueiginleikanum okkar með QR-kóða. Þú slærð einfaldlega inn upphæðina og framkallar QR-kóða - þaðan þarf viðskiptavinurinn að skanna kóðann af símanum þínum. Viðkomandi fer svo á örugga greiðslusíðu þar sem hann/hún þarf að slá inn kortaupplýsingar sínar og ganga frá greiðslunni. Þegar því er lokið er greiðslan gerð upp samstundis á reikningnum þínum og birtist á myPOS Glass appinu.
Af einhverri ástæðu getur síminn minn ekki lesið kortið sem viðskiptavinurinn vill greiða með. Hvað get ég gert?
Til að leysa þetta vandamál skaltu reyna að finna NFC-örgjörvann á bakhlið símans þíns og halda kortinu uppvið þennan örgjörva þar til þú sérð og heyrir merki um að greiðslan hafi farið í gegn. Gakktu einnig úr skugga um að kortið sé snertilaust þar sem aðeins er hægt að taka við snertilausum kortum á snjallsímann þinn. Önnur leið væri að taka við greiðslu með QR-kóða.
Get ég tekið við greiðslum á netinu með appinu?
Til að taka við netgreiðslum skaltu einfaldlega framkalla greiðslubeiðni úr valmyndinni „Meira“ og senda tengilinn með tölvupósti, spjalli eða textaskilaboðum. Viðskiptavinurinn fer þá á örugga greiðslusíðu til að ganga frá greiðslunni, sem gerir það enn auðveldara fyrir þig að taka við fjargreiðslum á einfaldan og öruggan hátt.
Hvernig get ég skoðað stöðuna á greiðslubeiðnum sem voru framkallaðar í Glass appinu?
Fyrir staðlaðar greiðslubeiðnir, sem hægt er að senda til viðskiptavina þinna í gegnum spjall, tölvupóst eða með textaskilaboðum, geturðu skoðað greiðsluna þína á myPOS reikningnum þínum eða í myPOS Glass appinu undir valmyndinni „Meira - Greiðslubeiðnir“. Greiðslubeiðnir hafa mismunandi stöðu, nánar til tekið séð, í bið, greitt, hætt við o.s.frv.
Fyrir QR-kóða sem þú hefur framkallað á myPOS Glass appinu þínu, þá geturðu séð greiðsluna samstundis á símanum þínum og á reikningnum þar sem þessar greiðslur eru gerðar með viðskiptavininn þér við hlið. Greiðslurnar birtast undir flipanum „Aðgerðir“ og í valmyndinni Greiðslubeiðnir.
Hvað er myPOS reikningur?
myPOS reikningur er viðskiptareikningur með IBAN númeri sem myPOS býður söluaðilum sínum innan EES, Bretlands og Sviss upp á. Hann er eitt af ókeypis virðisaukandi atriðum sem myPOS býður söluaðilum sínum upp á, auk ókeypis uppgjör fjár. Sem myPOS söluaðili færðu einnig ókeypis standard viðskiptakort sem þú getur notað til að nýta fjármagnið þitt, þó þú getir einnig nýtt þér glæsileg og vönduð Platinum viðskiptakortin okkar í Silver, Gold og Metal (https://www.mypos.com/is/business-card). myPOS reikningurinn er fáanlegur í mörgum gjaldmiðlum og getur hjálpað fyrirtæki þínu að vaxa.
Hvað kostar að taka við greiðslum með myPOS Glass?
Þú getur valið á milli tveggja leiða.
Starter
Þessi leið gefur þér algjört frelsi þar sem þú greiðir aðeins þegar þú færð greitt. Henni fylgir:
Pro
Þessi leið býður þér vildarfærslugengi gegn lágu mánaðarlegu áskriftargjaldi. Þetta er tilvalið fyrir fyrirtæki með meiri veltu. Að auki er fyrsti áskriftarmánuðurinn alveg ÓKEYPIS svo þú getir nýtt þér alla þjónustu myPOS Glass!
Kostir:
Þú getur valið verðlagningu sem hentar þér best í myPOS Glass appinu. Þú sækir bara appið og fylgir leiðbeiningunum. Þú getur séð heildarsundurliðun verða á myPOS Glass vefsíðunni.
Hvernig get ég sent viðskiptavininum kvittun fyrir greiðslu?
Þú getur sent rafræna kvittun til viðskiptavinarins annað hvort með tölvupósti eða í gegnum textaskilaboð. Veldu hentugasta kostinn fyrir viðskiptavininn og berðu ábyrgð á hverri sölu sem þú gerir.
Eru takmörk á upphæðum sem ég get tekið við?
Við skiljum að sem eigandi lítils fyrirtækis eru greiðslurnar sem þú tekur við frá viðskiptavinum mismunandi eftir vöru og þjónustu sem þú býður upp á. Þess vegna höfum við gert það auðvelt að taka við breiðu úrvali af upphæðum! Ólíkt öðrum lausnum á markaðnum takmarkar myPOS Glass ekki getu þína að taka við greiðslum - ef upphæðin er fyrir ofan mörk fyrir snertilausar greiðslur þarf viðskiptavinurinn einfaldlega að slá inn PIN-númerið sitt til að myPOS Glass geti tekið við og unnið úr greiðslunni.
Verða skynvörumerki Visa og hljóðvörumerki Mastercard fáanleg í gegnum myPOS Glass appið?
Já! Greiðsluviðtökuaðferðirnar sem njóta sívaxandi vinsælda, skynvörumerki með Visa og hljóðvörumerki með Mastercard, verða tiltækar á myPOS Glass appinu. Þú getur einnig nýtt þér virðisaukandi fríðindi hljóðvörumerkja fyrir fyrirtækið þitt og skapað þannig eftirminnilega greiðsluupplifun fyrir viðskiptavini þína.
Get ég gert endurgreiðslu eða ógilt færslu?
Fyrir utan að taka við greiðslum meðan þú rekur fyrirtæki þitt muntu einnig geta gert endurgreiðslur og ógilt ákveðnar færslur. Alveg eins og á venjulegum posa getur þú heimilað/bannað endurgreiðslu eða ógildingu og jafnvel verndað þennan eiginleika með lykilorði.
Hvaða upplýsingar/gögn úr símanum mínum eru nauðsynleg til að ég geti notað myPOS Glass?
Sem skráð og vottuð stofnun þurfum við að tryggja að við fylgjum réttum innleiðingarferlum fyrir nýja söluaðila. Þegar þú skráir þig fyrir myPOS Glass appið og svo það virki almennilega mun appið biðja þig um að heimila aðgang að þremur gagnasettum á Android-snjallsímanum þínum:
Hvernig virkar virkjunarferlið fyrir myPOS Glass?
Þú getur virkjað myPOS Glass á fjóra vegu.
Hverjir geta notað myPOS Glass?
myPOS Glass appið hefur verið sérstaklega þróað fyrir söluaðila, viðskiptafólk og fyrirtæki sem opna viðskiptareikning hjá myPOS til að halda viðskiptum sínum áfram og taka við greiðslum á auðveldan hátt.
Við styðjum einstaklingsfyrirtæki, sjálfstætt starfandi, verktaka, einkahlutafélög, fyrirtæki í ríkiseigu, sameignarfélög (og eins jafngildum hugtökum í Evrópu). Til eru nokkrir geirar sem við styðjum ekki við eins og er, til dæmis krossgengisbraskarar, vopnasöluaðilar, óeftirlitsskyldar góðgerðarstofnanir, fyrirtæki með handhafahlutabréf og aðrir. Þú getur skoðað samþykktarstefnuna okkar í lagahlutanum hér.