Svakalega snjall. Furðulega fyrirferðarlítill.

Eitt nett tæki sem passar við þínar vinnuaðferðir, hvar sem þú selur. Taktu við greiðslum, notaðu snjöll viðskiptatól og fáðu peninga inn á myPOS reikninginn þinn á nokkrum sekúndum.

17,900 kr

án VSK

Kaupa Bera saman posa
myPOS Flex device

Enginn sími. Ekkert Wi-Fi. Ekkert mál.

Innbyggt 4G og Wi-Fi halda tækinu þínu tengdu við afgreiðsluborðið eða á ferðinni. Engin þörf á aukabúnaði eða flókinni uppsetningu.

Virkar allan daginn.

Ein hleðsla styður meira en 550 færslur. Þú getur geymt hann í kvínni á milli þess sem þú selur til að halda honum hlöðnum og tilbúnum.

Tvær áferðir. Þitt val.

Veldu kolagráan fyrir hagnýtt, faglegt útlit eða hvítan fyrir hreint og nútímalegt útlit.

Tekur við öllum helstu kortagerðum.

Auðveldaðu viðskiptavinum að greiða fljótt og örugglega, færri glötuð sölutækifæri og notalegri greiðsluupplifun.

Eitt tæki, tilbúið í reksturinn.

Tafarlaust uppgjör, rafhlaða sem endist allan daginn og verkfæri fyrir daglegan rekstur, allt á einu fyrirferðarlitlu snjalltæki, svo reksturinn sé tilbúinn og geti blómstrað frá fyrsta degi.

Haltu tengingu

Innbyggt 4G og Wi-Fi skipta sjálfkrafa yfir. Það þýðir að greiðslurnar stöðvast aldrei, jafnvel þegar tengingin gerir það.

Virkar allan daginn

Ein hleðsla frá fyrstu til síðustu greiðslu og hröð hleðsla í hleðslukví. Tækið verður ekki rafhlöðulaust um miðjan dag.

Peningarnir á nokkrum sekúndum

Greiðslan fer inn á myPOS reikninginn þinn á nokkrum sekúndum, tilbúin til notkunar tafarlaust.

Snjöll, innbyggð verkfæri

Hafðu umsjón með þjórfé, gefðu út endurgreiðslur og skoðaðu söluskýrslur. Nýttu þér nytsamleg verkfæri af AppMarket, og eiginleiki til að skipta greiðslu er væntanlegur.

Þó tækið detti þarf salan ekki að detta niður

Byggður til að þola högg og vökvaslettur annasams dags, í hvaða veðri sem er. Óhapp þarf því ekki að stöðva sölu.

Taktu við greiðslum á þann hátt sem viðskiptavinir kjósa

Taktu við öllum helstu kortunum með örgjörva og PIN-númeri, snertilaust og greiðslum með snjallveski.

Gerður fyrir alls kyns rekstur.
Líka þinn.

Hver rekstur er einstakur. myPOS Flex er hannaður til að virka eftir takti þíns reksturs.

Smásala

Hafðu hann í kvínni á afgreiðsluborðinu, hlaðinn og tilbúinn. Taktu hann síðan til að þjóna viðskiptavinum hvar sem er í versluninni.

Matur og drykkur

Taktu við greiðslum og bjóddu upp á sveigjanlega þjórfjármöguleika við afgreiðsluborðið, á markaðnum eða útikaffihúsinu, svo þú getir þjónað í gegnum ys og þys.

Fegurð og vellíðan

Taktu við greiðslum og þjórfé við stólinn, afgreiðsluborðið eða heimili viðskiptavinarins - með fallegu en öflugu tæki.

Samgöngur

Rukkaðu fargjaldið með innbyggðu 4G og fáðu fjármagn inn á myPOS reikninginn þinn áður en þú sækir næsta kúnna.

Þjónusta

Taktu við greiðslu á staðnum, á vinnusvæðinu, á heimili viðskiptavinarins og hvar sem vinnan fer með þig, engin þörf á eltast við vörureikninga.

Hvað sem þú vinnur við og hvar sem vinnan fer fram

myPOS Flex er ekki byggður fyrir eins konar virkni. Hann er byggður til að laga sig að þér.

Þarftu uppsetningu við afgreiðsluborð?

Settu myPOS Flex í hleðslukvína fyrir snyrtilega uppsetningu á afgreiðsluborðinu og tryggðu að tækið sé hlaðið, sýnilegt og auðvelt að taka með þegar þjónustan færist til.

Eitt tæki. Tvær leiðir til að taka við greiðslum.
myPOS Flex + hleðslukví:

19,900 kr

án VSK

Kaupa
myPOS Flex counter setup myPOS Flex counter setup
Business owner accepting instant settlement payment Business owner accepting instant settlement payment

Fáðu greitt á nokkrum sekúndum með tafarlausu uppgjöri.

Fáðu aðgang að fjármagni í rauntíma með tafarlausu uppgjöri svo þú getir greitt útgjöldin, borgað birgjum eða notað peningana um leið og þú þarft.

Gefðu út áþreifanleg eða sýndardebetkort fyrir hversdagsnotkun og notaðu peningana um leið.

Kynntu þér reikninga fyrir fyrirtæki

Fleiri greiðsluvörur frá myPOS.

Tap to Pay on Phone

Taktu við snertilausum greiðslum með myPOS Glass með símanum einum saman, þar á meðal Apple Pay, Google Pay og snertilausum kortum. Engin þörf á auka vélbúnaði.

Greiðslutenglar

Sendu beiðnir og taktu við greiðslum frá viðskiptavinum á einfaldan hátt með greiðslutenglum.

Greiðslur á netinu

Auðveldaðu viðskiptavinum að greiða á netinu með tilbúnum körfuviðbótum sem virka með þinni uppsetningu.

Woo netverslun

Komdu þér upp og stjórnaðu netverslun með Woo, taktu við rafrænum greiðslum með myPOS og stjórnaðu greiðsluvirkninni í myPOS appinu.

myPOS í vasanum

Allt sem þú þarft til að stjórna myPOS Flex og greiðslum í einu appi.

  • Stjórnaðu myPOS Flex með einföldum verkfærum.

  • Sjáðu færslur og greiðsluvirkni í rauntíma.

  • Skoðaðu endurgreiðslur, þjórfé og söluþróun yfir tíma.

  • Búðu til greiðslutengla og QR-kóða til að bjóða upp á fleiri greiðsluleiðir.

  • Þjónustuver okkar er opið allan sólarhringinn þegar þig vantar aðstoð.

Device in hand Device in hand

myPOS Flex er tilbúinn. Ert þú það?

myPOS Flex býður þér upp á snjöll greiðsluverkfæri, rafhlöðu sem endist allan daginn og peninga á nokkrum sekúndum á einu, nettu tæki. myPOS Flex aðlagar sig að þínum söluþörfum, hverjar sem þær eru.

Kaupa Bera saman posa
myPOS Flex in daily use myPOS Flex in daily use

Algengar spurningar

Spurningum þínum svarað

myPOS Flex styður fleiri en 550 færslur á einni hleðslu og rafhlaðan endist í meira en 24 klukkustundir í biðstöðu. Það tekur tvær og hálfa klukkustund að hlaða rafhlöðuna að fullu.

Nei. myPOS Flex er sjálfstæður, snjall posi. Hann tengist og tekur við greiðslum sjálfur án þess að þurfa síma eða spjaldtölvu.

Nei. myPOS Flex er ekki með innbyggðan prentara, sem auðveldar okkur að gera hann nettari og auðveldari í burði. Þú getur sent kvittanir með tölvupósti, SMS-i og með QR-kóða. Ef þú þarft að prenta út kvittun er myPOS Ultra byggður fyrir það.

myPOS Flex þolir fall úr 1,5 metra hæð og er harðgerður til að þola annasama vinnudaga.

Ekki við ræsingu. myPOS Flex er hannaður fyrir greiðslur þar sem starfsmaður er til staðar. Ómannaður eiginleiki er væntanlegur í framtíðinni. Fyrir sjálfsala og sjálfsafgreiðslu í dag skaltu skoða myPOS ómannaðar greiðslulausnir.

Já. myPOS Flex styður þjórfé, endurgreiðslur og ógildingar beint í tækinu, og eiginleiki til að skipta greiðslu er væntanlegur.

Já. AppMarket gefur þér aðgang að vaxandi úrvali af öppum fyrir reksturinn þinn. Þetta felur í sér birgðastjórnun, vaktaplön starfsfólks, umsjón viðskiptavina, bókhaldshugbúnað og fleira, svo þú getur sérsniðið myPOS Flex að þínum söluþörfum.

Já. Allar færslur fara tafarlaust inn á myPOS viðskiptareikninginn þinn. Það er ókeypis að stofna reikning. Þú getur einnig gefið út áþreifanleg og sýndardebetkort fyrir starfsfólkið þitt þér að kostnaðarlausu.

Greiðslur eru lagðar inn á myPOS reikninginn þinn á nokkrum sekúndum og eru strax tilbúnar til notkunar.

Þú getur notað posaumsjónarkerfi myPOS til að stjórna, fylgjast með og uppfæra mörg tæki af einu stjórnborði. Þú getur séð sameinaðar skýrslur yfir allar staðsetningar þínar.

Þú færð tækið venjulega í hendurnar innan þriggja virkra daga.

Já. Aðstoð er í boði allan sólarhringinn með beinu spjalli, tölvupósti og síma. Alvöru manneskjur, alvöru aðstoð, hvenær sem er.

Cookie

Veldu kökustillingu